Heimildarmynd um Skaftáreldana 1783–84 og afleiðingar þeirra — sýnd við rætur eldanna í Kirkjubæjarklaustri.
Eldmessa fléttar saman þrívíddarefni, safnamyndir, ljósmyndir og upptökur teknar á staðnum til að segja sögu einnar mestu náttúruhamfara Íslandssögunnar.
Framleidd af Gagarin fyrir Skaftárelda ehf. Umsjón: Hringur Hafsteinsson. Frumsýnd í Öskju, Háskóla Íslands, 5. mars 2009.
Á hvítasunnu opnuðust Lakagígar — um 130 gígar á 27 km langri gossprungu. Gosið stóð í átta mánuði og er eitt mesta hraungos sögunnar.
„…kom upp fyrir norðan næstu byggðafjöll á Síðunni svart sandmistur og mökkur svo stór…“
Mestu hörmungar Íslandssögunnar. Enginn lést beint af hraunflóðinu, en um 70% bústofns féll vegna öskumisturs og loftmengunar.
þjóðarinnar — nær 10.000 manns — lét lífið. Áhrif öskunnar náðu um allan heim.
Prestur á Prestsbakka á Síðu frá 1778 sem þjónaði kirkjunni á Kirkjubæjarklaustri í hörmungunum. Trúmaður og náttúrufræðingur sem treysti einnig á lækningamátt jurta.
Hraunið nálgaðist kirkjuna. Séra Jón hélt messu þrátt fyrir það — talið var að hún yrði sú síðasta. Í ákafri bæn hans staðnæmdist hraunið og kirkjan bjargaðist.
Síðan hefur þessi messa verið kölluð Eldmessa og Jón nefndur Eldklerkurinn. Þar sem hraunið stöðvaðist heitir nú Eldmessutangi.
Eldmessa er sýnd á Hótel Klaustri í Kirkjubæjarklaustri á Suðurlandi — 270 km frá Reykjavík.
Myndin er sýnd í sýningarsal Hótel Klausturs. Hópar og aðrar tímasetningar eftir samkomulagi.
Hafðu samband: info@eldmessa.is